Skilmálar vefverslunar

Fyrirtækið á bakvið vefsvæðin inorganic.design, inorganic.xyz og inorganic.audio er Gjaldþrot ehf., kt. 690715-0310.

Gjaldþrot ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar innan 3 virkra daga eftir pöntun nema annað sé tilgreint í lýsingu vöru. Sé varan ekki til á lager verður haft samband og áætlaður afhendingartími vörunnar tilkynntur. Af öllum pöntunum dreift af Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar. Gjaldþrot ehf. ber skv. þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Gjaldþroti ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Frí sending á Dropp stöðvar er á pöntunum nema annað komi fram í lýsingu á vöru.

Verð á vöru og sendingarkostnaður

Öll verð í vefverslun eru birt með inniföldum 24% virðisauka þar sem það á við, en sendingarkostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram sé sendingarkostnaðar getið í lýsingu á vöru. Við sendum vörur með Dropp fyrir 690 kr. eða komum þeim heim til kaupanda eftir öðrum leiðum ef seljanda þykir svo. Sendingakostnaður fyrir sendingu heim að dyrum er tekinn fram fyrir hverja vöru fyrir sig en alla jafna er miðað við 1290 kr. innanlands. Einnig er hægt að sækja vörur í Vesturbæ og verður haft samband með nánari upplýsingum að kaupum loknum.

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan er keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum sé þess krafist. Að öðru leyti er vísað til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hún eða hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi ágreiningur vegna hans skal það mál rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Gjaldþrot ehf.
kt. 690715-0310
Eyjarslóð 7
101 Reykjavík

halldor@eldjarn.net